Fara á efnissvæði
IS EN PL
Quental
Fréttir | 23.06.2021

Róbert Quental til reynslu hjá Malmö

Róbert Quental Árnason er staddur í Svíþjóð þar sem hann er til reynslu hjá Malmö.

Malmö er sigursælasta félag Svíþjóðar.

Þessi efnilegi sóknarleikmaður lék sinn fyrsta leik í efstu deild hér á landi þegar hann kom inn af bekknum í 1-0 tapi Leiknis gegn Íslandsmeisturum Vals í sumar.

Róbert er sextán ára gamall og er mikill áhugi á honum erlendis frá, meðal annars frá Frakklandi og Ítalíu.

Ljóst er að frekari fréttir munu berast af honum á næstunni.