Fara á efnissvæði
IS EN PL
Studio Session 174
Fréttir | 24.02.2021

Sævar Atli í æfingahóp U21

Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið 26 leikmenn sem taka þátt í æfingum dagana 3. og 4. mars. Í hópnum eru aðeins leikmenn sem leika með íslenskum félagsliðum.

Sævar Atli Magnússon, fyrirliði okkar, er valinn í æfingahópinn og er það mikið gleðiefni.

Vuk Oskar er einnig í hópnum og þar má líka finna tvo aðra fyrrum leikmenn okkar, KR-ingana Hjalta og Stefán Árna.

Brynjar Atli Bragason | Breiðablik
Hákon Rafn Valdimarsson | Grótta
Sigurjón Daði Harðarson | Fjölnir
Arnór Borg Guðjohnsen | Fylkir
Atli Barkarson | Víkingur R.
Birkir Valur Jónsson | HK
Brynjólfur Andersen Willumsson | Breiðablik
Brynjar Ingi Bjarnason | KA
Daníel Hafsteinsson | KA
Davíð Ingvarsson | Breiðablik
Hörður Ingi Gunnarsson | FH
Ísak Snær Þorvaldsson | ÍA
Jason Daði Svanþórsson | Breiðablik
Jóhann Árni Gunnarsson | Fjölnir
Jónatan Ingi Jónsson | FH
Hjalti Sigurðsson | KR
Nikulás Val Gunnarsson | Fylkir
Karl Friðleifur Gunnarsson | Víkingur R.
Stefán Árni Geirsson | KR
Sævar Atli Magnússon | Leiknir R.
Sölvi Snær Guðbjargarson | Stjarnan
Róbert Orri Þorkelsson | Breiðablik
Rúnar Þór Sigurgeirsson | Keflavík
Viktor Örlygur Andrason | Víkingur R.
Vuk Oskar Dimitrjevic | FH
Þórir Jóhann Helgason | FH