Fara á efnissvæði
IS EN PL
Saevaratli
Fréttir | 05.08.2021

Sævar Atli seldur til Lyngby

Leiknir hefur selt fyrirliðann Sævar Atla Magnússon til Lyngby í Danmörku. Lyngby féll úr dönsku úrvalsdeildinni í fyrra en Leiknismaðurinn Freyr Alexandersson var ráðinn þjálfari liðsins fyrir tímabilið.

Lyngby hefur farið vel af stað í dönsku B-deildinni.

Sævar flaug út í morgun og stóðst læknisskoðun áður en hann skrifaði undir.

Leiknir óskar Sævari auðvitað alls hins besta og mun fylgjast grannt með ævintýrum hans í Danmörku! Takk fyrir allt Sævar og sjáumst síðar.