Fara á efnissvæði
IS EN PL
Binni
Fréttir | 01.03.2021

Safnar fyrir Steina Gísla og hvetur fleiri fótboltamenn til að taka þátt

Mottumars var settur formlega af stað um helgina þegar fulltrúar Landhelgisgæslunnar og Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu þáðu skeggsnyrtingu frá rakarastofunni Herramönnum í Kópavogi. Eftir sátu glæsilegir menn, með yfirvaraskegg, eða „mottu“, sem þeir ætla að bera til að sýna öðrum karlmönnum stuðning, hvort heldur þeim sem hafa greinst með krabbamein eða hafa verið aðstandendur krabbameinsgreindra. En það er aðeins byrjunin, Mottukeppnin var endurvakin í ár.

Á síðunni mottumars.is hafa nú þegar vel yfir 100 einstaklingar skráð sig til keppni og um 20 lið frá fyrirtækjum, íþróttaliðum eða vinahópum. Keppnin fer vel af stað og þar má sjá karlmenn á öllum aldri frá öllum landshornum. 

Einn þeirra sem hefur skráð sig til leiks er Brynjar Hlöðversson, fótboltamaður með Leikni Reykjavík. Hann var einn af burðarásum Leiknisliðsins sem kom öllum að óvörum síðasta sumar og tryggði sér sæti í efstu deild karla, Pepsi Max-deildinni, fyrir komandi sumar. Brynjar, eins og svo margir aðrir, þekkir krabbamein vel. „Já, þeir eru nokkrir sem ég þekki - eða þekkti réttara sagt,“ segir Brynjar. „Þá kemur fyrstur upp í hugann Sigursteinn Gíslason, hann var að þjálfa okkur hér í Breiðholtinu og var alveg einstakur maður. Hann fór allt of ungur.“ Brynjar viðurkennir fúslega að það hafi verið mjög erfitt að horfa á eftir Sigursteini, manni í blóma lífsins sem var að hefja glæsilegan þjálfaraferil, eftir að hafa verið sigursælasti leikmaður Íslandsmótsins í karlaflokki frá upphafi. Sigursteinn var aðeins 43 ára þegar hann lést. „En það er mikilvægt að taka þátt í átakinu, taka þátt í Mottumars. Ef allir fótboltamenn myndu safna nokkrum þúsundköllum, þá væru það ansi margir peningar. Maður kynnist auðvitað mörgum í kringum boltann, mörgum körlum, og svo greinast einhverjir þeirra með krabbamein. Við þekkjum þetta allir. En alveg eins og inni á vellinum, þá erum við í þessu saman. Þess vegna tek ég þátt og vona að fleiri geri það.“

Hér má styðja við Brynjar á mottumars.is

https://www.mottumars.is/keppnin/keppandi?cid=11066