Fara á efnissvæði
IS EN PL
Leiknir 01
Fréttir | 26.06.2025

Selfoss á útivelli

Það verður föstudagsfjör í Lengjudeildinni þegar Leiknir heimsækir Selfyssinga í 10. umferðinni. Leikurinn fer fram á JÁVERK-vellinum og hefst klukkan 19:15 föstudaginn 27. júní. Dómari leiksins verður Guðmundur Páll Friðbertsson. Sem fyrr er hægt að kaupa miða á Stubbi.

Leiknir gerði 1:1 jafntefli við Njarðvík í síðasta leik í Efra-Breiðholtinu á meðan Selfoss tapaði 2:0 fyrir Þór í Boganum á Akureyri. Fyrir þennan leik er Leiknir í 9. sæti deildarinnar með 8 stig (2 sigrar, 2 jafntefli, 5 töp) og markatöluna 10:22 en Selfoss er í 12. sætinu með 6 stig (2 sigrar, 0 jafntefli, 7 töp) og markatöluna 6:19.

Selfoss vann Grindavík 2:1 í fyrstu umferðinni og svo Fjölni 0:2 á útivelli í 7. umferð. Frosti Brynjólfsson og Raul Gomez Martorell hafa skorað tvö mörk hvor og Aron Lucas Vokes og Sesar Örn Harðarson eitt mark hvor.

Leiknir og Selfoss mættust síðast í Lengjubikarnum í byrjun febrúar á þessu ári. Sá leikur var líka spilaður á JÁVERK-vellinum og endaði 5:5. Frosti Brynjólfsson skoraði þrennu fyrir Selfoss en Dagur Ingi Hammer Gunnarsson tvö af mörkum Leiknis.

Þessi lið voru síðast saman í deild sumarið 2023. Þá unnu bæði lið útileikina sína, Leiknir vann 2:4 á Selfossi en Selfoss vann 2:3 í Efra-Breiðholtinu. Alls hafa liðin mæst 46 sinnum frá fyrsta leik sem var bikarleikur í júní 1979. Leiknir vann fyrsta leikinn og hefur samtals unnið 20 leiki á móti 18 sigrum hjá Selfossi. 8 leikir hafa endað með jafntefli og markatalan í leikjunum 46 er 85:81, Leikni í hag.

 

Við vonum að sem flest Leiknisfólk geti séð sér fært að mæta á völlinn og styðja okkar lið.

Áfram Leiknir!