Sjáðu sigurmark Sævars gegn Fylki
Leiknisliðið átti mjög flottan leik og vann verðskuldaðan 1-0 útisigur gegn Fylki í Lengjubikarnum á laugardag.
Okkar menn voru betri aðlinn stærstan hluta leiksins í Árbænu, en Sævar Atli Magnússon fyrirliði skoraði eina mark leiksins með skot í stöng og inn á 71. mínútu. Leikurinn var sýndur beint á Stöð 2 Sport og má sjá markið hér að neðan.
Dagur Austmann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 75. mínútu en vel skipulagt Leiknislið, með Guy Smit öruggan í öftustu línu, landaði öllum stigunum.
Hér má sjá skýrslu leiksins af vef KSÍ
Haukur Gunnarsson var vopnaður myndavélinni og má sjá myndir á heimasvæði Leiknis á Facebook
Síðasti leikur Leiknis í riðlinum verður á föstudaginn 12. mars, gegn Þrótti á gervigrasvelli okkar á Domusnova-svæðinu. Flautað til leiks klukkan 19.