Takk fyrir komuna stelpur!
Yfir 100 hressar og skemmtilegar stelpur á aldrinum 6-12 ára komu til okkar í Leikni á vinkonudeginum í dans, leiki og fótbolta. Margrét Magnúsdóttir landsliðsþjálfari U19 landsliðs kvenna kom og ávarpaði stelpurnar. Skipt var í stöðvar þarsem ýmist var dansað, hoppað í pokahlaupi ásamt öðrum leikjum og tekið þátt í ýmsum boltaþrautum á gervigrasinu. Í lokin var svo pizzaveisla í boði Dominos!
Hér er hlekkur á æfingatöflu þarsem sjá má hvenær hvaða flokkur er á æfingu:
https://www.leiknir.com/fotbolti-blak/aefingatoflur/
Takk fyrir komuna í Leikni og við vonumst til að sjá ykkur aftur á æfingum!