Fara á efnissvæði
IS EN PL
Photo 20.4.2022, 18 26 53
Fréttir | 21.04.2022

Tap á Dalvík í fyrsta leik Bestu

Meistaraflokkur karla þurfti að sætta sig við tóma stigatösku eftir heimsóknina norður á miðvikudagskvöld í fyrstu umferð Bestu deildarinnar gegn KA.

Það var klassískur vorbragur á leiknum og strákunum okkar tókst ekki að skora sem er töluvert ólíkt undirbúningstímabilinu. Það var svo skallamark Elfars Árna Aðalsteinssonar á 54. mínútu sem skyldi liðin að í leikslok. 

Fyrsti heimaleikurinn er á sunnudag á Domusnovavelli gegn Stjörnunni klukkan 16:00. Það verður vegleg dagskrá þá svo við skorum á allt Leiknisfólk að láta sjá sig og styðja drengina okkar til sigurs.