Fara á efnissvæði
IS EN PL
Kjuklingar
Fréttir | 02.03.2021

Þrír á landsliðsæfingar

Jörundur Áki Sveinsson hefur valið hópa til æfinga hjá U16 og U17 landsliðunum en æfingarnar verða 8. - 10. mars.

Leiknir á alls þrjá fulltrúa í hópunum. Róbert Quental Árnason er valinn í U16 hópinn og þeir Davíð Júlían Jónsson og Shkelzen Veseli eru valdir í U17 hópinn.

Þessir efnilegu leikmenn og vönduðu drengir hafa allir spilað mikið með meistaraflokki Leiknis núna á undirbúningstímabilinu.