Þróttur í heimsókn á föstudag
Leiknir leikur á föstudagskvöld gegn Þrótti í Lengjubikarnum. Þetta er síðasti leikur okkar liðs í riðlinum.
Leikurinn verður klukkan 19:00 á föstudag á Domusnova-gervigrasinu
Með því að smella hér má sjá stöðuna í riðlinum. Leiknir á enn möguleika á að enda í öðru sæti og komast þar með í 8-liða úrslitin. Þá þarf sigur að vinnast gegn Þrótti, Breiðablik þarf að vinna Fylki á laugardag og markatalan þarf að sveiflast okkur í hag. Sem stendur er Fylkir með betri markatölu en það munar fimm mörkum.
Áhorfendur þurfa að vera með grímur, skrá sig við komu á völlinn, gæta 2 metra reglunnar og fara ekki milli hólfa.
Leiknisfólk gengur inn um inngang við Fellaskóla og er á hólnum og við hann. Aðkomufólk fer inn um bílahlið rétt við World Class.
Ekki verður rukkað inn á leikinn en þeir vallargestir sem vilja samt sem áður sýna stuðning og borga sig inn á leikinn geta gert það:
Kt. 690476-0299 og reikningurinn 0537-26-016903