Tveir með úrvalsliði Reykjavíkur
Tveir leikmenn úr 4. flokki Leiknis æfa nú með Úrvalsliði Reykjavíkur.
Þeir Egill Ingi Benediktsson og Karan Gurung hafa verið valdir í Úrvalslið Reykjavíkur af Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Þeir æfa um þessar mundir með hópnum og munu spila gegn liði utan borgarmarkanna á næstunni.
Við óskum drengjunum til hamingju með þessa upphefð.
#StoltBreiðholts