Fara á efnissvæði
IS EN PL
Solonernir
Fréttir | 24.03.2022

Tvö Leiknisljónavörp í mars

Í byrjun mánaðarins vaknaði hlaðvarp allra Leiknismanna af vetrardvala til að kveðja tvo góða leikmenn sem hafa þjónað félaginu síðustu 4 ár. Þeir Sólon Breki og Ernir Bjarna fengu sitthvorn þáttinn með Ljónunum til að gera upp tíma sinn hjá félaginu og ræða framtíð sína og félagsins. 

Við hvetjum alla sem ekki eru búnir að háma þetta í sig til að gera það sem fyrst því næstu þættir horfa að sjálfsögðu til framtíðar enda styttist óðum í sumarið og nóg um að vera hjá okkur.

Leiknisljónavarpið er hægt að nálgast á öllum helstu þartilgerðu efnisveitum en einnig á heimasíðu Leiknisljónanna hér.