Valgeir Árni í Leikni
Valgeir Árni Svansson er genginn til liðs við Leikni frá Fylki. Um er að ræða 25 ára réttfættan varnarmann sem alinn er upp í Aftureldingu en spilaði í fyrra með Hönefoss í norsku neðrideildunum.
Hjalti Sigurðsson er á leið til Bandaríkjanna að feta menntaveginn í ágúst og því var nauðsynlegt að sækja liðsstyrk í hans stað í glugganum.
Valgeir skrifar undir til 2024 og við bjóðum kappann kærlega velkominn í Breiðholtið.
#StoltBreiðholts