Fara á efnissvæði
IS EN PL
508850) (1)
Fréttir | 28.06.2023

Vestri 1-0 Leiknir

Það var þungur róðurinn fyrir okkar menn þegar þeir yfirgáfu Ísafjörð án stiga eftir baráttuleik við Vestra í kvöld. Úrslitin þýða að við sitjum sem fastast í fallsæti og heimaleikurinn við Njarðvík á sunnudagskvöld er orðinn mjög mikilvægur fyrir framhaldið.

Það var Vladimir Tufegdzic sem skoraði eina mark leiksins á 77. mínútu en Danna Finns brást bogalistinn af vítapunktinum meðal annars í leiknum. Það var nokkuð lýsandi fyrir frammistöðu kvöldsins sem var ekki uppá marga fiska. 

Það hefur aldrei verið mikilvægara að fjölmenna á heimavöllinn okkar og styðja strákana til 3ja stiga gegn Njarðvíkingum á sunnudaginn næstkomandi en þeir grænklæddu er einnig í vandræðum og sólgnir í að spyrna okkur neðar í stað sín. 

#StoltBreiðholts