Viðtal | Siggi Höskulds fer yfir stöðu mála
Fylkir - Leiknir verður í Lengjubikarnum á morgun, laugardaginn 6. mars, og verður flautað til leiks klukkan 14:00 á Würth-vellinum, heimavelli Fylkis.
Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4.
Snorri Valsson spjallaði við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara okkar, um tapleikinn gegn Fjölni síðasta sunnudag og leik morgundagsins gegn Árbæingum.
Siggi fer einnig yfir stöðu mála á meiðslalista Leiknis en betur fór en á horfðist þegar Ernir Bjarnason fór af velli á börum gegn Fjölnismönnum. Ernir verður frá næstu vikurnar en verður klár áður en Íslandsmótið fer af stað.
Sjáðu viðtalið við Sigga Höskulds: