Vinkonudagur Leiknis
Leiknir býður öllum stelpum að koma í heimsókn þriðjudaginn 26. apríl milli 16-18.
Markmiðið er að kynna stelpur fyrir Leikni og gleðinni sem eru hluti af því að vera í íþróttum.
Farið verður saman í leiki, þrautir, hlustað á tónlist, dansað og svo endum við á pizzuveislu.
Með þessu vill Leiknir leggja sitt af mörkum til eflingar íþróttaiðkunar stúlkna í okkar frábæra hverfi.
Engin þörf á skráningu. Bara mæta og við vonumst til að sjá sem flestar stelpur úr 1. – 6. bekk!