Fara á efnissvæði
IS EN PL
Leiknirlogo
Fréttir | 14.03.2024

Aðalfundur Leiknis 2024

Aðalfundur Íþróttafélagsins Leiknis 2024 verður í Leiknisheimilinu, Austurbergi 1, mánudaginn 15. apríl nk. kl. 18:00.

Dagskrá aðalfundar er skv. lögum félagsins, m.a. flytur formaður skýrslu um sl. starfsár, ársreikningur verður lagður fram til samþykktar, tillögur teknar til afgreiðslu og kosið verður í stjórn félagsins. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í starfi Leiknis.

Rétt til fundarsetu og kosningarétt hafa allir atkvæðisbærir félagsmenn samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laganna:

  • Allir iðkendur, skv. iðkendaskrá félagsins, sem náð hafa 18 ára aldri,
  • leikmenn meistaraflokka félagsins og
  • félagsmenn sem greiða árgjald til félagsins skv. ákvörðun stjórnar.

Félagsgjald er 2.500 kr. og hægt verður að greiða það á staðnum eða millifæra á 0537-26-16902, kt. 690476-0299. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leiknir@leiknir.com með nafni og kennitölu viðkomandi merkt félagsgjald og verður send valfrjáls krafa í heimabanka viðkomandi.

Kosning til aðalstjórnar. Tveggja ára kjörtímabili tveggja stjórnarmanna (Garðar Gunnar Ásgeirsson og Snorri Villafuerte Valsson) lýkur á aðalfundinum og fer fram kosning. Garðar Gunnar Ásgeirsson gefur kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en það gerir Snorri Villafuerte Valsson ekki. Þá hefur Sigríður Agnes Jónasdóttir, sem var kosin til tveggja ára á síðasta ári í stjórn, ákveðið að hætta og því þarf aukalega að kjósa aðalmann til eins árs. Þá verða kosnir allt að 3 í varastjórn.

Kjörgengi til stjórnarstarfa hafa allir félagsmenn sem náð hafa 18 ára aldri. Framboð til stjórnar eða annarra kjörinna embætta félagsins samkvæmt dagskrá aðalfundar skal skila til kjörnefndar eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi miðvikudaginn 10. apríl nk. Netfang kjörnefndar er kjorstjornleiknir@gmail.com.

Tillögur til lagabreytinga og stofnun nýrra deilda skulu tilkynntar með aðalfundarboði og skulu breytingatillögur lagðar fyrir kjörnefnd félagsins (kjorstjornleiknir@gmail.com) eigi skemur en fimm dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi miðvikudaginn 10. apríl nk.

Kjörnefnd 2024 (kjorstjornleiknir@gmail.com)

Davíð K. Jónsson

Guðný Sævinsdóttir

Kjartan Örn Þórðarson

-----

Úr lögum félagsins (https://www.leiknir.com/felagid/log-leiknis/)

Dagskrá aðalfundar

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla formanns
  • Skýrsla gjaldkera aðalstjórnar, kynning og umræður um endurskoðaða reikninga
  • Lagabreytingar og önnur löglega framborin mál
  • Kosning formanns aðalstjórnar
  • Kosning aðalstjórnar félagsins og varamanna í stjórn.
  • Kosning löggilts endurskoðanda félagsins og tveggja skoðunarmanna
  • Önnur mál

 

4.gr. Félagsmenn(eiga rétt setu á aðalfundi)

  • Félagsmenn í félaginu eru allir iðkendur sem standa skil á æfingagjöldum til félagsins sem og foreldrar þeirra, leikmenn sem spila með 2. flokki og meistaraflokkum félagsins, þjálfarar og aðrir starfsmenn félagsins. Ennfremur allir þeir sem greiða árgjald til félagsins og eiga ársmiða á heimaleiki meistaraflokka Leiknis.
  • Atkvæðisbærir á fundum félagsins skulu allir iðkendur, skv. iðkendaskrá félagsins, sem hafa náð 18 ára aldri, leikmenn meistarflokka félagsins og félagsmenn sem greiða árgjald til félagsins skv. ákvörðun stjórnar. Einnig sitjandi stjórn, formaður unglingaráðs og formaður meistaraflokksráðs.
  • Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi og innheimt af aðalstjórn.